|
|||
2017-07-27 19:03:50 CEST 2017-07-27 19:03:50 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - ÁrsreikningurHagnaður á öðrum ársfjórðungi nam 11 milljónum USD – afkomuspá hækkuð
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri "Rekstur annars ársfjórðungs gekk vel. Vöxtur félagsins heldur áfram og við fluttum í fyrsta sinn yfir eina milljón farþega í millilandaflugi á öðrum ársfjórðungi og fjölgaði þeim um 13% milli ára. Það er ánægjulegt að sætanýtingin batnar á sama tíma og framboðið hefur verið aukið. Farþegum Air Iceland Connect fjölgar nokkuð milli ára og aukning er í leiguflugi og fraktstarfsemi. Á hótelum félagsins fjölgaði seldum gistinóttum milli ára en herbergjanýting minnkaði lítillega. Við uppfærum nú EBITDA spá okkar fyrir árið í 150-160 milljónir USD. Helsta ástæða þess er gengisþróun frá því að síðasta spá var birt. Bókunarstaðan í júlí og ágúst er góð og aðgerðir sem gripið hefur verið til í rekstrinum ganga samkvæmt áætlun. Það eru vissulega miklar annir í íslenskri ferðaþjónustu um þessar mundir en styrking krónunnar og kostnaðarhækkanir gera það að verkum að framlegð í greininni hefur minnkað. Félagið hefur sterka stöðu og býr yfir framúrskarandi starfsfólki sem er grunnur að velgengni þess."
Frekari upplýsingar veita
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455 |
|||
|