2014-05-06 11:28:00 CEST

2014-05-06 11:29:01 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Áætlað tap vegna verkfalls flugmanna


Áætlað tap Icelandair Group vegna boðaðs verkfalls Félags íslenskra
atvinnuflugmanna nemur um 13-15 milljónum dollara eða um 1,5-1,7 millljarði
króna, ef verkfallið varir allan þann tíma sem það hefur verið boðað.  Í
fjárhæðinni eru áætlaðar tapaðar tekjur að frádregnum sparnaði vegna
niðurfelldra fluga auk beins áætlaðs kostnaðar vegna aðstoðar við farþega.  Í
fjárhæðinni eru hvorki hugsanleg áhrif yfirvinnubanns né áhrif verkfallsins á
bókanir og tekjur félagsins á þeim dögum sem verkfallið stendur ekki yfir. 
Jafnframt er ekki tekið tillit til hugsanlegra langtímaáhrifa verkfallsins á
Icelandair Group og Ísland almennt sem áfangastaðar fyrir ferðamenn. 



Frekari upplýsingar:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála
bogi@icelandairgroup.is
665 8801

Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla
iris@icelandairgroup.is
840 7010