|
|||
2016-11-30 16:57:54 CET 2016-11-30 16:57:54 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. : Steinþór Pálsson lætur af störfum hjá LandsbankanumBankaráð Landsbankans og Steinþór Pálsson, bankastjóri, hafa komist að samkomulagi um að hann láti af störfum hjá bankanum. Steinþór hefur verið bankastjóri frá 1. júní 2010. Hreiðar Bjarnason framkvæmdastjóri Fjármála og staðgengill bankastjóra hefur tekið við stjórn bankans. Staða bankastjóra verður auglýst svo fljótt sem verða má. "Ég hef verið í Landsbankanum í sex og hálft viðburðaríkt ár. Gríðarlega mikið hefur áunnist á þessum árum við að endurreisa fjárhag heimila og fyrirtækja. Landsbankinn hefur tekið stakkaskiptum á þessu tíma og ég skil sáttur við mín störf. Fjárhagsstaða bankans er mjög traust og markaðshlutdeild bankans hefur vaxið. Ég kveð samstarfsfólk mitt með hlýjum hug og baráttukveðjum til framtíðar," segir Steinþór Pálsson. Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs: "Bankaráðið þakkar Steinþóri öflugt og árangursríkt starf fyrir Landsbankann. Mörg brýn og krefjandi úrlausnarefni hafa verið til lykta leidd undir hans forystu og staða bankans hefur styrkst mikið á undanförnum árum. Nú bíða Landsbankans nýjar áskoranir og telur bankaráðið rétt að takast á við þær með nýjum bankastjóra. Við óskum Steinþóri velfarnaðar í framtíðinni." [] |
|||
|