2017-08-17 10:33:34 CEST

2017-08-17 10:33:34 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íslandsbanki hf. - Árshlutareikningur - 6 mán.

Islandsbanki hf. : Afkoma fyrri árshelmings 2017


Afkoma Íslandsbanka á fyrri árshelmingi 2017

Helstu atriði í afkomu 1H2017:

  * Hagnaður eftir skatta var 8,0 ma. kr. samanborið við 13,0 ma. kr. á 1H16.
    Munurinn á milli ára skýrist af einskiptishagnaði af sölu Borgunar á hlutum
    í Visa Europe á 1H16. Arðsemi eigin fjár var 9,2% á 1H17 samanborið við
    12,9% á 1H16.
  * Hagnaður bankans af reglulegri starfsemi var 7,4 ma. kr., samanborið við
    8,0 ma. kr. á fyrri árshelmingi 2016
  * Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 15% eiginfjárþátt 1
    (CET1) var 11,2% á tímabilinu, samanborið við 11,3% á sama tíma 2016.
  * Hreinar vaxtatekjur voru 15,2 ma. kr. á 1H17 (1H16: 15,9 ma. kr.), sem er
    lækkun um 4% milli tímabila.  Vaxtamunur var 2,9% (1H16: 3,1%) og hefur
    lækkað lítillega samhliða breyttu vaxtaumhverfi.
  * Hreinar þóknanatekjur voru 6,8 ma. kr. samanborið við 6,7 ma. kr. á 1H16,
    sem er 2% hækkun milli tímabila.
  * Stjórnunarkostnaður var 13,3 ma. kr., sem er 6% lækkun frá 1H16.
  * Kostnaðarhlutfall var 59,2% (1H16: 55,8%), en sértækur bankaskattur og
    einskiptiskostnaður eru undanskildir við útreikning kostnaðarhlutfalls.
  * Heildareignir voru 1.047 ma. kr. (mar17: 1.029 ma. kr.).  Útlán til
    viðskiptavina og lausafjársafn voru samtals 97% af stærð efnahagsreiknings.
  * Útlán til viðskiptavina jukust um 4,9% (34,0 ma. kr.) á 1H17 í 722 ma. kr.
    Ný útlán voru 108 ma. kr. sem dreifðust vel milli viðskiptaeininga bankans.
  * Gæði eignasafns bankans halda áfram að batna, en hlutfall lána í vanskilum
    umfram 90 daga eða með virðisrýrnun var 1,2% (mar17: 1,6% og des16: 1,8%).
  * Innlán frá viðskiptavinum lækkuðu um 3,7% (21,8 ma. kr.) á 1H17, sem er í
    takt við væntingar bankans við losun hafta, og voru 572 ma. kr. við lok
    tímabilsins.
  * Eiginfjárhlutfall var 23,5% og eiginfjárhlutfall þáttar 1 (CET1) var 23,3%
    við lok tímabilsins, samanborið við 23,1% og 22,8% við lok mars 2017.
  * Lausafjárstaða bankans er sterk og umfram kröfur eftirlitsaðila og innri
    viðmið.  Við lok júní 2017 var lausafjárhlutfallið (LCR) 171% (mar17: 181%)
    og fjármögnunarhlutfallið (NSFR) var 119% (mar17: 121%).
  * Vogunarhlutfall var 15,7% við lok júní 2017, samanborið við 15,5% við lok
    mars, sem telst hóflegt bæði í innlendum og erlendum samanburði.
  * Íslandsbanki er eini bankinn á Íslandi með lánshæfismat frá tveimur
    alþjóðlegum lánshæfismatsfyrirtækjum.  Í janúar 2017 hækkaði Fitch mat sitt
    í BBB/F3 með stöðugum horfum og í október 2016 hækkaði S&P mat sitt í BBB/A-
    2 með jákvæðum horfum.

Helstu atriði á 2F2017:

  * Hagnaður eftir skatta var 5,0 ma. kr. (2F16: 9,5 ma. kr.).
  * Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 15% eiginfjárþátt 1
    (CET1) var 11,8% á fjórðungnum (2F16: 13,3%).
  * Hreinar vaxtatekjur voru 7,8 ma. kr. á 2F17 (2F16: 8,4 ma. kr.) og
    vaxtamunurinn var 3,0% (2F16: 3,3%).
  * Hreinar þóknanatekjur voru 3,5 ma. kr. (2F16: 3,5 ma. kr.).

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:

"Fyrstu sex mánuðir ársins voru viðburðaríkir í rekstri bankans. Útlán til
viðskiptavina jukust um 4,9% frá áramótum en sú aukning kemur frá öllum
viðskiptavinahópum. Á sama lækkaði vanskilahlutfall í 1,2% úr 1,8% frá árslokum
2016. Lánveitingar til fyrirtækja í útibúaneti bankans eru 40% til fyrirtækja á
landsbyggðinni en það hlutfall hefur verið að aukast undanfarin ár.

Góður gangur er í fjárfestingarbankastarfsemi og vann fyrirtækjaráðgjöf að
mörgum áhugaverðum verkefnum á tímabilinu. Meðal annars var veitt ráðgjöf vegna
fyrirhugaðs samruna Iceland Travel og Gray Line og vegna sölu á Icelandic Gadus.

Traustur grunnrekstur skilar bankanum hagnaði upp 7,4 milljarða eftir fyrstu sex
mánuði ársins sem er 11,2% arðsemi af reglulegum rekstri og er það lítillega
yfir væntingum.

Við kynntum framsæknar skipulagsbreytingar með það að markmiði að gera skipulag
bankans að fullu viðskiptavinamiðað. Í september klárast flutningar í nýjar
höfuðstöðvar en þá verður öll starfsemi bankans undir einu þaki  en því fylgir
mikið kostnaðarhagræði.  Nú þegar prentar starfsfólk helmingi minna en mikil
áhersla hefur verið lögð á að draga úr pappírsnotkun í verkefnamiðuðu
vinnuumhverfi. Ég er þess sannfærð að með slagkrafti sameinaðra höfuðstöðva sé
Íslandsbanki kominn í gott keppnisform.

Annað og öðruvísi kapphlaup er þó framundan á laugardaginn þegar
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram. Skráningar hafa aukist frá fyrra ári
en það er von okkar að þessi stærsta fjáröflun landsins slái ný met í áheitum
til góðgerðarfélaga enn eitt árið."

Afkomufundur á íslensku kl. 12.30

Í dag, þann 17. ágúst kl. 12.30, munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri
Íslandsbanka, og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á
opnum fjárfestafundi og svara fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á íslensku og er
haldinn í höfuðstöðvum bankans að Hagasmára 3. Boðið verður upp á veitingar.

Skrá mig á fjárfestafund.

Símafundur á ensku kl. 10.30

Einnig er markaðsaðilum boðið upp á símafund kl. 10.30 á ensku. Farið verður
yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast
skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og
aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir
fundinn.

Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.

Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér:
http://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarhagsdagatal/.



Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy,  tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187.
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, edda.hermannsdottir@islandsbanki.is
    og í síma 440 4005.




[]