|
|||
![]() |
|||
2010-04-09 17:40:23 CEST 2010-04-09 17:41:21 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisbréfa RIKS 21 0414Útboð á verðtryggðum ríkisbréfum í flokki RIKS 21 0414 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Seðlabanka Íslands kl. 14:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að bjóðendum buðust öll samþykkt tilboð á sama verði. Hæsta samþykkta ávöxtunarkrafa ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: Alls bárust 55 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 33.082 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 5.870 m.kr. að nafnverði á 3,80% ávöxtunarkröfu, sem jafnframt verða raunvextir flokksins. Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 13. apríl. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 14. apríl 2010. |
|||
|