2008-12-15 13:12:11 CET

2008-12-15 13:13:11 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Landic Property hf. - Fyrirtækjafréttir

Landic Property vinnur að stefnumótun


Landic Property vinnur nú að því að móta nýja stefnu fyrir félagið í kjölfarið
á miklum breytingum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Vinnan felur m.a. í sér
úttekt á rekstri og efnahag félagsins með það að markmiði að styrkja
fjárhagsstöðu þess. Landic Property hefur samið við UBS Investment Bank og
Catella Corporate Finance um ráðgjöf við stefnumótunina.  Niðurstöðu er að
vænta fyrir lok janúar 2009. 

„Ég er bjartsýnn eftir frumviðræður við helstu hagsmunaaðila félagsins að
þessi vinna skili góðum árangri og að eftir standi sterkt fasteignafélag.“ 
Áhugi hefur komið fram um að fjárfesta í félaginu að sögn Viðars Þorkelssonar
forstjóra. 

Frekari upplýsingar veita:

Viðar Þorkelsson, forstjóri Landic Property 
Sími: + 354 669 4444

Sebastiaan van Loon, UBS Investment Bank
Sími: +44 207 568 0944 

Jesper Bo Hansen, Catella Corporate Finance
Sími: +45 3393 7593