2007-11-01 10:12:10 CET

2007-11-01 10:12:10 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Seðlabanki Íslands - Fyrirtækjafréttir

- Seðlabanki Íslands hækkar vexti


Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um
0,45 prósentur í 13,75%. Í Peningamálum sem bankinn birtir á heimasíðu sinni
eftir kl. 11 í dag eru færð rök fyrir ákvörðun bankastjórnar. 

Næsta ákvörðun bankastjórnar um stýrivexti verður tilkynnt fimmtudaginn 20.
desember 2007. Þar með er einum vaxta¬ákvörðunardegi bætt við áður tilkynnta
daga í ár. Það er gert til þess að ekki líði of langur tími fram að fyrsta
ákvörðunardegi næsta árs. Dagsetningar vaxtaákvarðana 2008 verða birtar í
Peningamálum í dag.