|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2022-08-15 10:35:44 CEST 2022-08-15 10:35:44 CEST REGULATED INFORMATION Festi hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsFesti hf.: Endurkaup vika 32Í viku 32 keypti Festi alls 550.000 eigin hluti fyrir 121.650.000 kr. eins og hér segir:
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 4. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Fyrir kaupin þá átti Festi enga hluti í félaginu. Festi hefur nú keypt samtals 4.290.000 hluti fyrir 936.595.000 kr. og á í dag 4.290.000 hluti sem samsvarar 1,37% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 21. júní 2022 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 5.000.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,60% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 1.150 milljónum króna að kaupverði. Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is). |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|