|
|||
2022-06-29 18:08:59 CEST 2022-06-29 18:08:59 CEST REGULATED INFORMATION Kvika banki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarKvika banki hf.: Moody‘s hækkar lánshæfismat innlána hjá Kviku í Baa1; horfur áfram stöðugarAlþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Moody's Investors Service („Moody‘s“) tilkynnti í dag hækkun á lánshæfismati innlána (e.deposit rating) Kviku banka hf. („Kvika“) til lengri tíma. Hækkunin nemur einu þrepi og er lánshæfiseinkunnin því hækkuð úr Baa2 í Baa1 með stöðugum horfum. Moody‘s staðfesti einnig Baa2 lengri tíma lánshæfiseinkunnir Kviku sem útgefanda, Baa1 langtíma- og P-2 skammtímaáhættueinkunnir sem mótaðila (CRR) og Baa1(cr) langtíma- og P-2(cr) einkunnir sem mótaðila til skamms tíma (CR). Horfur einkunna vegna innlána og sem útgefanda eru stöðugar. Í viðhengi má sjá tilkynninguna sem birt var af Moody‘s. Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is eða í síma 540 3200. Viðhengi |
|||
|