|
|||
![]() |
|||
2008-01-30 19:45:28 CET 2008-01-30 19:45:28 CET REGULATED INFORMATION Hf. Eimskipafélag Íslands - ÁrsreikningurHagnaður af undirliggjandi starfsemi 9 milljónir evraHf. Eimskipafélag Íslands - Yfirlit 12 mánaða 2007 • Heildartekjur 1.459 milljónir evra • Heildargjöld 1.372 milljónir evra • EBITDA 125 milljónir evra - EBIT 54 milljónir evra • Hagnaður af undirliggjandi starfsemi 9 milljónir evra • Tap eftir skatta með aflagðri starfsemi 9 milljónir evra • Heildareignir í lok ársins 2.469 milljónir evra • Veltufé frá rekstri 41 milljón evra • Eigið fé 31. október 451 milljón evra - eiginfjárhlutfall 18,3% • Veltufjárhlutfall 1,0 Baldur Guðnason, forstjóri Hf. Eimskipafélags Íslands: “Núverandi starfsemi Eimskips skilar rúmum 9 milljónum evra í hagnað á árinu og er í takt við áætlanir. Afkoma af undirliggjandi starfsemi Eimskips stóðst væntingar stjórnenda en tap Air Atlanta, sem var um 18 milljónir evra, leiðir til þess að samstæðan í heild skilar 9 milljóna evra tapi eftir skatta. Ljóst er að flugreksturinn hefur haft neikvæð áhrif á afkomu félagsins undanfarin ár. Eimskip hefur nú selt alla flugrekstrartengda starfsemi og mun það létta á rekstri félagsins. Því má gera ráð fyrir bættri afkomu í framtíðinni. Velta Eimskips þrefaldaðist á árinu en velta ársins 2007 er um 1,5 milljarðar evra samanborið við hálfan milljarð evra árið 2006. EBITDA var um 140 milljónir evra árið 2007, þar af skilar flutningastarfsemi Eimskips 125 milljónum evra og flugreksturinn um 11 milljónum evra. EBITDA hlutfallið hefur hækkað úr 6% í tæp 9% millli ára. Vegna kaupa á félögum og þreföldunar á veltu hefur árið einkennst af miklum vexti. Mikil vinna hefur verið lögð í endurskipulagningu og samþættingu rekstrareininga og þeim aðgerðum hefur fylgt kostnaðaraukning til skamms tíma. Þessar hagræðingaraðgerðir koma hins vegar til með að skila bættri afkomu á árinu 2008 og áfram verður unnið að þeim auk frekari samþættingar á rekstrareiningum. Á árinu voru skipafélögin Containerships og Kursiu Linija sameinuð undir nafni Containerships. Flutningsgeta var aukin með tilkomu nýrra og stærri skipa, skipum var fækkað, skrifstofur voru sameinaðar og starfsfólki fækkað. Eimskip tók yfir rekstur Atlas og Versacold á árinu. Unnið hefur verið markvisst að samþættingu og hagræðingu innan félaganna, sem mun skila sér í betri afkomu á árinu 2008. Stjórnendateymi félaganna hafa verið sameinuð, höfuðstöðvum Atlas í Toronto var lokað, starfsfólki fækkað og dregið hefur úr öðrum kostnaði. Samfara kaupunum jókst skuldsetning félagsins, til skamms tíma. Ákveðið var að auka ekki hlutafé félagsins vegna þessara kaupa heldur að selja fasteignir félaganna í Norður Ameríku. Sölu eigna að andvirði um 500 milljónir evra er lokið. Á öðrum ársfjórðungi 2008 er stefnt að því að ljúka sölu á fasteignum að verðmæti um 700 milljóna evra. Að því loknu er gert ráð fyrir að eiginfjárhlutfall félagsins verði um 25%. Við lítum á árið 2008 sem nýtt upphaf í sögu Eimskips þar sem stöðugt og vel rekið félag lítur nú dagsins ljós. Eimskip mun nú einbeita sér enn frekar að flutninga- og vöruhúsastarfsemi þar sem félagið hefur náð forskoti á alþjóðavísu. Rekstur félagsins er mjög vel dreifður milli helstu markaða félagsins sem eru: Norður Atlantshaf og Ísland, Norður Ameríka, Evrópa, Eystrasaltssvæðið og Rússland og Asía.” Fréttatilkynningu og ársreiking má skoða hér í viðhengi. |
|||
|