|
|||
![]() |
|||
2016-12-01 09:57:30 CET 2016-12-01 09:57:30 CET REGULATED INFORMATION HS Orka hf. - FyrirtækjafréttirHS Orka hf. tilkynnir jákvæða niðurstöðu gerðardómsmálsHS Orku hf. hefur borist jákvæð niðurstaða í gerðardómsmálinu sem varðaði gildi orkusölusamnings milli HS Orku hf. og Norðuráls Helguvíkur ehf. Gerðardómurinn komst að þeirri niðurstöðu að orkusölusamningurinn væri sökum tiltekinna kringumstæðna ekki lengur í gildi. Ennfremur var það niðurstaða gerðardómsins að lok samningsins væru ekki af völdum HS Orku og öllum gagnkröfum Norðuráls Helguvíkur ehf. í málinu var hafnað. Ásgeir Margeirsson forstjóri HS Orku hf. sagði af þessu tilefni: „Við erum ánægð að þetta langvinna mál sé nú að baki. Þessi niðurstaða mun gera okkur kleift að leita nýrra samningstækifæra á Íslandi án takmarkana eftir því sem ný orka verður til reiðu.“ Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku hf., í síma +354 855-9301. |
|||
|