|
|||
2014-05-16 18:18:03 CEST 2014-05-16 18:19:03 CEST REGULATED INFORMATION Eimskipafélag Íslands hf. - ÁrsreikningurEimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2014Kynningarfundur 23. maí 2014 Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs eftir lokun markaða fimmtudaginn 22. maí 2014. Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Gylfi Sigfússon, forstjóri, og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, munu kynna uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2014. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 23. maí 2014 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst kl. 8:30. Boðið verður uppá morgunverð frá kl. 8:15. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors. |
|||
|