2016-01-06 10:19:55 CET

2016-01-06 10:19:55 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Ríkissjóður greiðir 50 milljarða króna inn á skuldabréf Seðlabanka Íslands – 10% lækkun skulda á árinu 2015


Í lok árs 2015 greiddi ríkissjóður 49,9 milljarða króna inn á skuldabréf
Seðlabanka Íslands. Er þetta ein stærsta einstaka afborgun af skuldum
ríkissjóðs til þessa. Afborguninni var mætt með lækkun á sjóðsstöðu ríkissjóðs
hjá Seðlabankanum. 

Skuldabréfið, sem  upphaflega var gefið út í janúar 2009 til styrkingar
eiginfjárstöðu Seðlabankans, er afborgunarbréf og nemur árleg afborgun 5 ma.kr.
 Á árinu 2015 greiddi ríkissjóður um 47 ma.kr. til viðbótar árlegri afborgun af
bréfinu og nema eftirstöðvar þess í árslok um 90 ma.kr.  Áætlað er að greiða
bréfið upp að fullu á yfirstandandi ári. Að teknu tilliti til greiðslu á
skuldabréfi Seðlabankans nam sjóðsstaða ríkissjóðs í Seðlabanka Íslands um 88,5
ma.kr. í árslok 2015. 

Ríkissjóður forgreiddi einnig stóran hluta af útistandandi erlendum lánum á
síðasta ári eða um 103 ma.kr. Á fyrri hluta ársins keypti ríkissjóður tæplega
helming af útistandandi skuldabréfaútgáfu í Bandaríkjadölum frá árinu 2011 eða
sem samsvarar um 67 ma.kr. Í maí forgreiddi ríkissjóður lán frá Póllandi sem
veitt var í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og námu þær um 7,5 ma.kr. Þá fyrirframgreiddi
ríkissjóður svokallað Avens-skuldabréf í júlí að fjárhæð 28,3 ma.kr. 

Á síðastliðnu ári fyrirframgreiddi ríkissjóður því um 150 ma.kr. af innlendum
og erlendum skuldum.  Umræddar fyrirframgreiðslur hafa að öðru óbreyttu um 7
ma.kr. áhrif til lækkunar vaxtagjalda á ári hverju. Heildarskuldir ríkissjóðs í
árslok 2015 eru áætlaðar um 1.349 ma.kr. til samanburðar við 1.492 ma.kr. í
árslok 2014. Samsvarar það um 10% lækkun skulda á milli ára.  Á árinu 2016 er
áætlað að skuldir ríkissjóðs lækki enn frekar og nemi 1.171 ma.kr. í lok
ársins. 

Nánari upplýsingar veitir Esther Finnbogadóttir í síma 545-9200.