|
|||
![]() |
|||
2015-06-08 13:23:45 CEST 2015-06-08 13:24:46 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki stækkar tvo flokka sértryggðra skuldabréfaArion banki hf. lauk á föstudag útboði á tveimur útistandandi flokkum sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq Íslandi. Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 21 var stækkaður um 600.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,31% og verðtryggði flokkurinn ARION CBI 29 var stækkaður um 3.120.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,45%. Skuldabréfaflokkarnir eru verðtryggðir með vísitölu neysluverðs og hafa verið teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi. Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á næsta útboði verðtryggðra skuldabréfa í september. Arion banki nýtir sértryggð skuldabréf til fjármögnunar á íbúðalánum til einstaklinga. Arion banki veitir nú verðtryggð íbúðalán á 3,90% föstum vöxtum til fimm ára og 3,85% breytilegum vöxtum. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|