|
|||
![]() |
|||
2013-06-07 18:01:18 CEST 2013-06-07 18:02:19 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirSkiptigengi í gjaldeyrisútboðiSamkvæmt tilkynningu Seðlabanka Íslands dags. þann 7. maí sl. varðandi gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands sem haldið verður 11. júní nk. kom fram í útboðsskilmálum að skiptigengi vegna kaupa bankans á erlendum gjaldeyri í tengslum við sölu ríkisverðbréfa í flokki RIKS 33 0321 yrði birt í lok dags 7. júní. Ákveðið hefur verið að skiptigengi á fjölda eininga ríkisverðbréfa pr. evra skal byggjast á útboðsverðinu og föstu verði ríkisverðbréfsins, sem er 108,655808 kr. pr. eining af ríkisverðbréfinu með áföllnum vöxtum og verðbótum (e. dirty price) miðað við uppgjörsdag 14. júní 2013 (ávöxtunarkrafa 2,85%).[1] Formúlan er eftirfarandi: Skiptigengi = útboðsverð/(verð ríkisverðbréfs/100). [1]Hreint verð (e. clean price) er 102,2. |
|||
|