|
|||
2011-12-20 18:30:34 CET 2011-12-20 18:31:34 CET REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - FyrirtækjafréttirIcelandair Group gengur frá kaupum á 2 Boeing 757 200 vélumIcelandair Group hefur gengið frá kaupum á tveimur Boeing 757 200 vélum sem félagið hefur haft á langtímaleigu. Ákveðið var að kaupa vélarnar af leigusala vegna hagstæðra kjara sem félaginu bauðst. Meginhluti kaupverðsins var fjármagnaður með rúmlega 24 milljóna dollara láni til 6 ára. Vélarnar hafa verið í notkun í millilandaflugi Icelandair og munu halda því áfram. Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group: „Miðað við áætlaðan notkunartíma vélanna þá bæta kaupin afkomu félagsins og á þeim forsendum var ákvörðunin tekin.“ Nánari upplýsingar veita: Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455 Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801 |
|||
|