|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2017-04-09 21:54:43 CEST 2017-04-09 21:54:43 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - Breyting á réttindum tengdum einstökum flokkum verðbréfaKaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – vika 14Í 14. viku 2017 keypti Icelandair Group hf. 11.683.301 eigin hluti. Heildarfjárhæð kaupanna nam kr. 159.800.159,- og sundurliðast á eftirfarandi hátt:
Icelandair Group hf. átti 99.321.344 eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 111.004.645 eigin hluti, eða sem nemur 2,22% af útgefnum hlutum í félaginu. Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Icelandair Group hf. sem aðalfundur félagsins heimilaði þann 10. mars 2016 og hefur verið hrint í framkvæmd sbr. tilkynningu í Kauphöll þann 20. febrúar 2017. Icelandair Group hf. hefur keypt samtals 86.004.645 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,72% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 1.254.243.681 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 114.000.000 hlutum sem eru 2,28% af útgefnum hlutum í Icelandair. Heildarfjárhæð endurkaupanna má ekki verða hærri en 1.700 milljónir króna að markaðsvirði. Áætlunin er í gildi til 8. september 2017 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup félagsins eru uppfyllt, eftir því hvort gerist fyrr. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, ásamt síðari breytingum.
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|