2008-05-13 17:48:00 CEST

2008-06-03 16:10:53 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

- Undirritun samninga í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði


Fjármálaráðherra hefur falið Seðlabanka Íslands að gera samninga í tengslum við
útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. 

Aðilum að OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi sem eru með eiginfjárstöðu að
fjárhæð a.m.k. 5.000 m.kr. um síðustu áramót og hafa nauðsynlegan búnað til
þess að taka þátt í útboðum ríkisverðbréfa sem Seðlabanki Íslands heldur fyrir
hönd ríkissjóðs, er boðið að gerast aðilar að samningunum. Fyrirhugað er að
Seðlabankinn geri samninga við lágmark 5 aðila sem verða svokallaðir
aðalmiðlarar. 

Aðalmiðlarar hafa einir heimild til þess að leggja fram tilboð í útboðum
Seðlabanka Íslands þar sem ríkisverðbréf eru boðin til kaups eða sölu. Einnig
fá þeir aðgang að verðbréfalánum ríkisverðbréfa sem Seðlabankinn býður upp á
fyrir hönd ríkissjóðs. 

Aðalmiðlarar annast viðskiptavakt á markflokkum ríkisverðbréfa í OMX, Norrænu
kauphöllinni á Íslandi. Aðalmiðlurum er skylt að setja fram kaup- og sölutilboð
að lágmarki 100 m.kr. í hvern markflokk ríkisverðbréfa með hliðsjón af
hámarksmun sem tilgreindur er í samningunum. 

Frekari upplýsingar er að finna í meðfylgjandi sýnishorni af samningi í
tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Þeir
kauphallaraðilar sem hyggjast gerast aðalmiðlarar með ríkisverðbréf mæti til
undirritunar samninga klukkan 9:15 föstudaginn 23. maí 2008 í húsakynnum
Seðlabanka Íslands að Kalkofnsvegi 1. 

Frekari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, alþjóða- og markaðssviði
Seðlabanka Íslands í síma 569 9600.