|
|||
![]() |
|||
2011-07-19 13:47:06 CEST 2011-07-19 13:48:06 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði óverðtryggða ríkisbréfa RIKB 13 0517 og RIKB 16 1013Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 13 0517 og RIKB 16 1013 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 13 0517: Alls bárust 5 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 6.800 m.kr. að nafnverði. Þremur tilboðum var tekið fyrir 6.400 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 107,650 (2,87% ávöxtunarkröfu). RIKB 16 1013: Alls bárust 13 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.370 m.kr. að nafnverði. Tólf tilboðum var tekið fyrir 3.120 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,800 (5,59% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 fimmtudaginn 21. júlí. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 22. júlí 2011. |
|||
|