2016-02-08 17:52:37 CET

2016-02-08 17:52:37 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Icelandair Group hf. - Ársreikningur

Gott ár að baki


  -- Hagnaður ársins nam 111,2 milljónum USD og jókst um 44,7 milljónir USD eða
     67%.
  -- EBITDA 2015 nam 219,0 milljónum USD samanborið við 154,3 milljónir USD árið
     2014.
  -- Rekstrartekjur jukust um 2% á milli ára. Tekjuaukning á föstu gengi nam
     12%.
  -- EBITDA á fjórða ársfjórðungi var jákvæð um 20,1 milljón USD en var neikvæð
     um 1,5 milljónir USD á sama tímabili á síðasta ári.
  -- Eiginfjárhlutfall var 47% í árslok 2015 samanborið við 43% í árslok 2014.
  -- Handbært fé umfram vaxtaberandi skuldir var 148,6 milljónir USD í árslok. 
  -- Stjórn félagsins leggur til að arður að fjárhæð 3.500 milljónir króna verði
     greiddur til hluthafa á árinu 2016 sem samsvarar 0,7 krónum á hvern hlut.



Björgólfur Jóhannsson, forstjóri:

„Rekstur félagsins gekk vel á árinu og afkoman er betri en áætlanir stjórnenda
gerðu ráð fyrir í upphafi árs og EBITDA ársins er við efri mörk síðustu
afkomuspár félagsins. Margir samverkandi þættir hafa jákvæð áhrif á sterkt
ársuppgjör. Þar má nefna lækkandi eldsneytisverð, aukna eftirspurn á
Norður-Atlantshafsmarkaðinum sem við höfum mætt með auknu framboði ásamt góðri
afkomu í leiguflugi og fraktflugi. Þá hefur nýting á hótelherbergjum aukist
talsvert milli ára. 

Á undanförnum árum höfum við fylgt skýrri stefnu með það að markmiði að tryggja
arðbæran vöxt félagsins til langs tíma. Við viljum að innri vöxtur félagsins sé
sjálfbær og taki mið af aðstæðum á hverjum tíma. Undanfarin ár höfum við
jafnframt lagt ríka áherslu á að styrkja rekstur félagsins utan háannatímans og
það er mjög ánægjulegt að sjá mikinn rekstrarbata á fjórða ársfjórðungi. Sterk
eiginfjárstaða og undirliggjandi sjóðstreymi tryggja getu okkar til að ráðast í
arðbærar fjárfestingar sem auka samkeppnishæfni til langs tíma. Frá og með
árinu 2010 hefur verið góður stígandi í rekstri Icelandair Group og hafa tekjur
vaxið úr 718 milljónum USD árið 2010 í 1.140 milljónir USD árið 2015, eða um
422 milljónir USD. 

Horfur í rekstri Icelandair Group fyrir árið 2016 eru góðar. Félagið kynnti
síðastliðið haust flugáætlun sína í millilandaflugi fyrir árið 2016, sem gerði
ráð fyrir aukningu framboðinna sætiskílómetra á milli ára um 18%.  Síðan hefur
sala gengið vel og innflæði bókana verið það gott að við höfum ákveðið að bæta
einni Boeing 757 vél til viðbótar í flotann.  Heildarframboðsaukning milli ára
verður því 24%. EBITDA-spá fyrir árið 2016 gerir ráð fyrir að EBITDA verði á
bilinu 245-250 milljónir USD. Gert er ráð fyrir áframhaldandi vexti á
ferðamannamarkaðinum til Íslands sem og á markaðnum milli Evrópu og N-Ameríku í
gegnum Ísland. Veruleg uppbygging mun halda áfram í hótelstarfsemi félagsins í
miðborg Reykjavíkur. Horfur í ferðaþjónustu á Íslandi eru ágætar auk þess sem
við teljum hagfelldar horfur í fraktflutningum og leiguflugsstarfsemi á árinu
2016. Það er mikilvægt að árétta að ytri þættir svo sem sveiflur á
eldsneytisverði og gjaldeyrismörkuðum geta haft töluverð áhrif á afkomu
félagsins. 

Starfsfólk okkar hefur á undanförnum árum unnið frábært starf við uppbyggingu
félagsins og sá árangur sem náðist í rekstrinum á seinasta ári er afrakstur
þeirrar vinnu. Fyrir það ber að þakka.“ 



Nánari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group
sími: 896-1455

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group
sími: 665-8801