2016-07-01 18:01:00 CEST

2016-07-01 18:01:00 CEST


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Enska Íslenska
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Heimildir lífeyrissjóða til fjárfestingar erlendis


Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að veita lífeyrissjóðum og öðrum innlendum
vörsluaðilum séreignarlífeyrissparnaðar undanþágu frá lögum um gjaldeyrismál
til fjárfestingar í fjármálagerningum útgefnum í erlendum gjaldeyri. Samanlagt
nemur heimildin a.m.k. 40 ma.kr. sem gildir til loka september nk. Frá miðju
síðasta ári til loka júní í ár hefur lífeyrissjóðunum verið veitt heimild til
erlendrar fjárfestingar alls að fjárhæð 40 ma.kr. 

Gjaldeyrisinnstreymi það sem af er þessu ári, ásamt minni óvissu um þróun
greiðslujafnaðar í framhaldi af aflandskrónaútboði og nauðasamningum slitabúa,
hefur skapað svigrúm til frekari fjárfestingar lífeyrissjóða og annarra
vörsluaðila séreignarsparnaðar í fjármálagerningum útgefnum í erlendum
gjaldeyri. 

Í aflandskrónaútboði sem fram fór um miðjan júní sl. var ráðstafað úr
gjaldeyrisforða rúmlega 54 ma.kr. Að útboði afloknu nemur forðinn því u.þ.b.
158% af viðmiði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins varðandi stærð gjaldeyrisforða (RAM,
Reserve Adequacy Metrics). Sjóðurinn telur æskilegt að hlutfallið sé a.m.k.
150% í aðdraganda þess að fjármagnshöft á innlenda aðila yrðu losuð og
Seðlabankinn hefur tekið undir þá skoðun. Forðinn er því u.þ.b. 34 ma.kr. yfir
þessu viðmiði. Í ljósi rúmrar stöðu forða, áframhaldandi gjaldeyrisinnstreymis
og þess að óvissan um hversu miklum gjaldeyrisforða yrði ráðstafað í
aflandskrónuútboðinu er ekki lengur til staðar, hefur svigrúm Seðlabankans til
þess að hækka heimildir lífeyrissjóðanna til erlendra fjárfestingar aukist.
Verði gjaldeyrisinnstreymi mikið næstu mánuði kemur til álita að veita
viðbótarheimildir, umfram þá 40 ma.kr. sem nú hefur verið tekin ákvörðun um.
Undanþágur sem sjóðunum verða veittar munu gera ráð fyrir þeim möguleika. 

Eins og áður eru rökin fyrir undanþágunni þau að þjóðhagslegur ávinningur
fylgir því að gera lífeyrissjóðunum kleift að bæta áhættudreifingu í
eignasöfnum og minnka uppsafnaða erlenda fjárfestingarþörf þeirra þegar
fjármagnshöft verða losuð á innlenda aðila. Þar með er dregið úr hættu á
óstöðugleika í gengis- og peningamálum við losun fjármagnshafta. Til lengri
tíma litið hafa þessar auknu heimildir sjóðanna hverfandi áhrif á
gjaldeyrisstöðuna því gera má ráð fyrir að gjaldeyriskaup lífeyrissjóðanna á
næstu mánuðum muni draga úr þörf þeirra til gjaldeyriskaupa í framtíðinni. 

Fjárfestingarheimildinni verður skipt á milli lífeyrissjóðanna og annarra
vörsluaðila með þeim hætti að annars vegar verður horft til samtölu eigna, sem
fær 86% vægi, og hins vegar til iðgjalda að frádregnum lífeyrisgreiðslum, sem
fær 14% vægi. Útreikningurinn byggir á upplýsingum úr síðustu ársreikningabók
Fjármálaeftirlitsins um lífeyrissjóði, þ.e. tölum frá árinu 2014. Undanþágan
mun miðast við að heimild hvers aðila gildi til 30. september 2016. 

Lífeyrissjóðum, sem starfsleyfi hafa samkvæmt V. eða XI. kafla laga nr.
129/1997, og öðrum innlendum vörsluaðilum séreignarlífeyrissparnaðar, sem
hlotið hafa staðfestingu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á grundvelli 10.
gr. laga. nr. 129/1997, og hafa áhuga á að sækja um undanþágu frá lögum nr.
87/1992 um gjaldeyrismál til framangreindra viðskipta, er bent á að senda inn
umsókn til Seðlabanka Íslands. Eyðublað vegna umsóknar um undanþágu má finna á
eftirfarandi vefslóð: Umsóknareyðublað 

Umsóknir skulu berast Seðlabankanum bréflega á eftirfarandi:

Seðlabanki Íslands
b.t. gjaldeyriseftirlits
Kalkofnsvegi 1
150 Reykjavík


Nánari upplýsingar veitir Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri í síma
569-9600.