2015-07-10 00:14:34 CEST

2015-07-10 00:15:35 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Flugfélag Íslands hefur keypt Bombardier Q400 flugvélar


Flugfélag Íslands hefur gengið frá kaupum á þremur Bombardier Q400 flugvélum.
Heildarfjárfestingin mun hækka heildareignir Icelandair Group samstæðunnar um
25 milljónir dollara, að teknu tilliti til söluverðs allra fimm Fokker 50
flugvéla Flugfélags Íslands.  Vélarnar eru 2000 og 2001 árgerð og verða þær
afhentar í júlí og ágúst á þessu ári.  Þá fara þær í innleiðingarferli fyrir
leiðakerfi Flugfélags Íslands en gert er ráð fyrir að fyrsta vélin byrji að
fljúga í leiðarkerfinu í desember 2015.  Fjárfestingin verður fjármögnuð með
lausafé Icelandair Group. 



Nánari upplýsingar veitir:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801