2015-11-11 10:14:16 CET

2015-11-11 10:15:17 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Eimskipafélag Íslands hf. - Ársreikningur

Eimskip birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2015


Kynningarfundur 20. nóvember 2015

Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2015 eftir lokun
markaða fimmtudaginn 19. nóvember 2015. 

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Gylfi Sigfússon
forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og
stjórnunarsviðs, munu kynna uppgjör þriðja ársfjórðungs og fyrstu níu mánaða
2015. 

Fundurinn verður haldinn föstudaginn 20. nóvember 2015 í höfuðstöðvum félagsins
að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst kl. 8:30. Boðið verður uppá morgunverð frá
kl. 8:15. 

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu
Eimskips, www.eimskip.is/investors.