|
|||
![]() |
|||
2010-04-09 13:45:24 CEST 2010-04-09 13:46:22 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði ríkisbréfa RIKB 11 0722Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum í flokki RIKB 11 0722 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 11 0722: Alls bárust 22 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.750 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 3.150 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 102,06 (6,22% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 13. apríl. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 14. apríl 2010. |
|||
|