|
|||
2016-05-20 18:19:06 CEST 2016-05-20 18:19:06 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirSala á íbúða- og ríkisskuldabréfum í eigu ríkissjóðsÍ tengslum við nauðasamninga slitabúa fallinna fjármálafyrirtækja hefur ríkissjóður m.a. fengið afhent sem hluta af stöðugleikaframlagi eftirfarandi skuldabréf. Flokkar Nafnverð (krónur) RIKB 16 1013 4.286.000.000 RIKB 19 0226 1.380.102.621 HFF 34 0415 20.000.000 Lindarhvoll ehf. fer með umsýslu og ráðstöfun ofangreindra eigna fyrir hönd ríkissjóðs. Ákveðið hefur verið að selja þessi bréf með útboðsfyrirkomulagi þriðjudaginn 24. maí 2016 og verður andvirðinu ráðstafað skv. ákvæðum til bráðabirgða III í lögum nr. 36/2001 um Seðlabanka Íslands. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast kaupendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Lindarhvoll ehf. áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja tilboð sem berast, að hluta eða öllu leyti, eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Tilboð skulu sendast til Seðlabankans í gegnum Bloomberg-útboðskerfið milli kl. 10:00 og 10:30, þriðjudaginn 24. maí 2016. Tilboð skulu sett fram í verðum, með þremur aukastöfum. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Niðurstaðan verður birt kl. 11:30. Greiðslu- og uppgjörsdagur er fimmtudaginn 26. maí 2016. Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, forstöðumaður hjá Lánamálum ríkisins í síma 569 9633. |
|||
|