|
|||
2014-01-20 18:11:52 CET 2014-01-20 18:12:54 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirS&P gefur Landsbankanum lánshæfiseinkunnina BB+ með stöðugum horfumHið alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtæki Standard & Poor's (S&P) gefur Landsbankanum lánshæfiseinkunnina BB+ og telur horfurnar stöðugar. Þetta kemur fram í mati fyrirtækisins á lánshæfi Landsbankans sem birt var í dag, 20. janúar 2014. Í lánshæfismati S&P kemur fram að fyrirtækið álíti að Landsbankinn búi að umtalsverðu svigrúmi í lausa- og eiginfjárstöðu við erfiðar aðstæður í efnahagslífinu. Mat S&P á stöðugum horfum Landsbankans endurspeglar þær væntingar fyrirtækisins að eiginfjárgrunnur Landsbankans muni halda áfram að styrkjast og að bankinn muni endurskipuleggja skuldabréfin sem gefin voru út til LBI og eru á gjalddaga 2014-2018. Ennfremur segir S&P að lánshæfismatið endurspegli 'bb' grunneinkunina fyrir íslenskt fjármálakerfi og mat þeirra á „fullnægjandi" viðskiptastöðu bankans, „sterkri" eiginfjárstöðu og afkomu, „fullnægjandi" áhættustöðu, „meðaltraustri" fjármögnun og „fullnægjandi" lausafjárstöðu, í samræmi við skilgreiningu S&P á þessum mælikvörðum. S&P lýsir þeirri skoðun sinni að Landsbankinn hafi verið vel rekinn frá stofnun árið 2008, sýnt einstaka hagkvæmni í rekstri og tekist vel að draga úr vanskilum útlána. Þrátt fyrir smæð Landsbankans í alþjóðlegum samanburði, býr hann að frekar breiðum tekjugrunni, sterkri eiginfjárstöðu og góðri afkomu, samkvæmt mati S&P. Útreikningur S&P á hlutfalli leiðrétts eigin fjár Landsbankans á móti leiðréttum eignum (e. leverage) var yfir 20% í september 2013. Þetta hlutfall er er eitt það hæsta meðal þeirra alþjóðlegu viðskiptabanka sem S&P metur. Steinþór Pálsson bankastjóri segir: ,,Þetta mat Standard & Poor‘s er ánægjulegt og á þeim nótum sem við ætluðum, m.a. í ljósi lánshæfiseinkunnar ríkissjóðs. Sterk staða Landsbankans kemur skýrt fram í mörgum þeim þáttum sem metnir eru, sérstaklega er ánægjulegt að sjá mat á rekstri, áhættu og fjárhagsstöðu sem eru þeir þættir sem lögð hefur verið mikil áhersla á að bæta. Landsbankinn sóttist eftir lánshæfiseinkun til að auðvelda sér aðgengi að erlendum lánamörkuðum í framtíðinni. Þessi góða niðurstaða ætti að auka traust á bankanum og um leið er hún ein af mörgum vörðum á leið landsins að afnámi fjármagnshaftanna sem ekki síður er mikilvægt.“ Frekari upplýsingar um Landsbankann má nálgast á vef bankans, www.landsbankinn.is. Frekari upplýsingar veitir Kristján Kristjánsson, pr@landsbankinn, 410 4011 & 899 9352 |
|||
|