2008-12-19 17:40:47 CET

2008-12-19 17:41:47 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Icelandair Group hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Framkvæmdastjóri SmartLynx


Eugene O´Reilly hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra SmartLynx, dótturfélags
Icelandair Group í Lettlandi. Hann tekur við starfinu af Garðari Forberg, sem
fer í leyfi að eigin ósk og mun að því loknu hverfa aftur til starfa fyrir
Icelandair Group. SmartLynx er leiguflugfélag með starfsemi víða um heim, en
höfuðstöðvar í Riga í Lettlandi. 

Eugene O´Reilly hefur starfað undanfarin tvö ár sem aðstoðarframkvæmdastjóri
Icelease, sem annast alþjóðleg flugvélaviðskipti fyrir samstæðuna. Hann
starfaði frá 2001 hjá Sojitz Aircraft Corporation, japönsku
flugvélaleigufyrirtæki, og á árinum 1992-2000 sem aðstoðarforstjóri tyrkneska
flugfélagsins Pegasus Airlines. Eugene er frá Írlandi, viðskiptafræðingur og
löggiltur endurskoðandi að mennt.