|
|||
![]() |
|||
2017-08-21 17:53:24 CEST 2017-08-21 17:53:24 CEST REGULATED INFORMATION Landsnet hf. - ÁrsreikningurÁrshlutareikningur Landsnets 1. janúar - 30. júní
Sterk eiginfjárstaða og stöðugur rekstur Árshlutareikningur Landsnet fyrir janúar – júní 2017 var lagður fram í dag. Afkoma fyrirtækisins er samkvæmt áætlunum. Á síðasta ári var unnið að breyttri fjármögnun og lánasafnið fært að stærstum hluta úr verðtryggðum íslenskum krónum yfir í Bandaríkjadali sem skilaði betri vaxtakjörum. Þetta endurspeglast í uppgjörinu þar sem verulegar breytingar hafa verið á gengi gjaldmiðla á tímabilinu en áhrifa þeirra gætir ekki nema að óverulegu leyti í uppgjörinu í fyrsta skipti í langan tíma. Mikilvægum áföngum hefur verið náð í endurfjármögnun fyrirtækisins, búið er að greiða niður lán og endurgreiðsluferli langtímalána hjá félaginu bætt til muna. Fjárfestingar eru undir áætlunum en tafir vegna leyfisveitinga höfðu áhrif á framkvæmdir fyrirtækisins. Stærsta einstaka verkefni ársins, að tengja Þeistareykjavirkjun og PCC á Bakka við meginflutningskerfið er þó á ætlun. Helstu atriði árshlutareiknings
Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri: „ Það er ánægjulegt að sjá að árshlutareikningurinn sýnir að rekstur Landsnets er stöðugur og eiginfjárstaða félagsins er sterk. Stefnan sem mörkuð var við endurfjármögnunina hefur þegar skilað miklum árangri . Við erum á lygnum sjó og höfum sett okkur það markmið að skila stöðugum, arðsömum og hagkvæmum rekstri. Á næstu misserum munum við ljúka við endurfjármögnun félagsins. Þrátt fyrir tafir vegna leyfismála stefnir í að þetta verði eitt mesta fjárfestingaár í sögu fyrirtækisins.“ Hér er hægt að nálgast árshlutareikninginn: www.landsnet.is Frekari upplýsingar veitir: Guðlaug Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjármála, sími 563 9311 eða netfang gudlaugs@landsnet.is
Til viðmiðunar eru sýndar íslenskar krónur, notast var við gengi USD /ISK 103,34
|
|||
|