|
|||
![]() |
|||
2016-03-15 18:37:48 CET 2016-03-15 18:37:48 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf.: Íslandsbanki lýkur víxlaútboðiÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 4, 5 og 6 mánaða. Tilboðum var tekið fyrir 860 m.kr. en heildareftirspurn í útboðinu var 3,3 ma. kr. Seldir voru víxlar í 4 mánaða flokkinn ISLA 16 0721 að nafnvirði 440 m.kr. á 6,45% flötum vöxtum (verð 97,7581). Í 5 mánaða flokkinn ISLA 16 0815 seldust að nafnvirði 120 m.kr. á 6,50% flötum vöxtum (verð 97,3118) og í 6 mánaða flokkinn ISLA 16 0915 seldust að nafnvirði 300 m.kr. á 6,50% flötum vöxtum (verð 96,7846). Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 12,6 ma. kr. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 21. mars næstkomandi en þá eru 1,5 ma. kr. á gjalddaga í ISLA 16 0321. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [HUG#1994646] |
|||
|