2020-05-29 14:30:09 CEST

2020-05-29 14:30:09 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lykill fjármögnun hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lykill fjármögnun hf.: Skuldabréfa- og víxlaútboð 4. júní


Lykill fjármögnun hf. efnir til skuldabréfa- og víxlaútboðs fimmtudaginn 4. júní næstkomandi. Boðnir verður til sölu nýr skuldabréfaflokkur LYKILL 24 06 og nýr 6 mánaða víxill LYKILL 201215.

Skuldabréfaflokkurinn er til 4 ára, ber fasta 2,80% óverðtryggða vexti og er tryggður með veði í útlánum og fjármögnunarsamningum Lykils. Skuldabréfin eru með jöfnum greiðslum höfuðstóls og vaxta á þriggja mánaða fresti og lokagjalddaga 14. júní 2024. Skuldabréfin verða tekinn til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Skuldabréfaútboðið verður lokað og skuldabréfin seld á pari eða genginu 100,00

Víxlaútboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er.

Markaðsviðskipti Arion Banka hf. hafa umsjón með útboðinu og kynnir það fyrir hugsanlegum fjárfestum. Lykill fjármögnun áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Ekki er um almennt útboð að ræða, og er þátttaka í útboðinu aðeins heimil aðilum sem flokkast sem hæfir fjárfestar skv. 9. tl.  43. greinar laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007. Útboðið er undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra flokka skuldaskjala eru birt á vefsíðu félagsins: https://www.lykill.is/starfsemi/fjarfestatengsl/

Skila skal inn tilboðum á netfangið skuldabrefamidlun@arionbanki.is fyrir klukkan 17:00 fimmtudaginn 4. júní. Uppgjör viðskipta fer fram mánudaginn 15. Júní.

Nánari upplýsingar veita:
Hrafn Steinarsson, Markaðsviðskiptum Arion Banka hf., hrafn.steinarsson@arionbanki.is s: 444 6910
Arnar Geir Sæmundsson, Fjárfestingarsviði TM hf., arnargs@tm.is, s: 540 1700