|
|||
![]() |
|||
2008-01-30 14:48:33 CET 2008-01-30 14:48:33 CET REGULATED INFORMATION Kaupþing banki hf. - Fyrirtækjafréttir- Lánshæfiseinkunn Kaupþings áfram til skoðunar hjá Moody'sLánshæfismats fyrirtækið Moody's Investor Service hefur tilkynnt að Aa3/C mat á Kaupþingi sé enn til skoðunar með hugsanlega lækkun í huga. Kaupþing var tekið til skoðunar í kjölfar tilkynningar um fyrirhuguð kaup á NIBC í ágúst 2007. Moody's heldur þessari skoðun áfram þrátt fyrir að tilkynnt hafi verið í dag um að fallið hafi verið frá yfirtökunni og fyrirhuguðu hlutafjárútboði. Þrátt fyrir að þessi tilkynning sé talin hafa jákvæð áhrif á lausafjárstöðu Kaupþings. Moody's Investors Service lækkaði mat sitt á Kaupþingi Banki í Aa3 í apríl 2007. Sjá nánar á neðangreindi slóð: http://www.kaupthing.com/Investors/Ratings/Moodys Frekari upplýsingar veita: Guðni Aðalsteinsson, Framkvæmdastjóri Fjárstýringar í síma-444 6126 Jónas Sigurgeirsson, Framkvæmdastjóri Samskiptasviðs í síma 444 6112 eða ir@kaupthing.com |
|||
|