|
|||
![]() |
|||
2011-04-20 17:30:56 CEST 2011-04-20 17:31:57 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirUndirritun samninga í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaðiFjármálaráðherra hefur falið Lánamálum ríkisins hjá Seðlabanka Íslands að gera samninga í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Aðilar að NASDAQ OMX á Íslandi, sem hafa starfsleyfi í samræmi við 1. og 3. tl. 1. mgr. 4. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 og eigið fé að lágmarki 5 milljónum evra (EUR), sbr. 2. mgr. 14. gr. sömu laga og hafa nauðsynlegan búnað til þess að taka þátt í útboðum ríkisverðbréfa, geta óskað eftir því að gerast aðilar að samningunum. Aðalmiðlarar hafa einir heimild til þess að leggja fram tilboð í útboðum þar sem ríkisverðbréf eru boðin til kaups eða sölu. Einnig fá þeir aðgang að fyrirgreiðslu svo sem verðbréfalánum ríkisverðbréfa. Aðalmiðlarar annast viðskiptavakt á markflokkum ríkisverðbréfa í NASDAQ OMX á Íslandi. Aðalmiðlurum er skylt að setja fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 100 m.kr. í hvern markflokk ríkisbréfa með hliðsjón af hámarksmun sem tilgreindur er í samningunum. Frekari upplýsingar er að finna í meðfylgjandi sýnishorni af samningi í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Kauphallaraðilar sem hyggjast gerast aðalmiðlarar með ríkisverðbréf eru beðnir að mæta til undirritunar samninga klukkan 16:00 föstudaginn 29. apríl 2011 í húsakynnum Seðlabanka Íslands að Kalkofnsvegi 1. Frekari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson hjá Lánamálum ríkisins í síma 569 9600. |
|||
|