2008-12-08 10:59:59 CET

2008-12-08 11:01:00 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Tilkynning um útboð - nýr flokkur


Miðvikudagur 10. desember klukkan 14:00 fer fram útboð á óverðtryggðum
ríkisbréfum með tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands f.h. ríkissjóðs. 

Um er að ræða nýjan flokk ríkisbréfa, RIKB 10 1210, sem ber 13,75% vexti sem
greiddir eru árlega. Lokagjalddagi bréfsins er 10. desember 2010. 

Seðlabankinn áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem
berast, hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er
heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðið verður með hollensku sölufyrirkomulagi sem þýðir að öll samþykkt tilboð
bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudagur 12. desember 2008 sem er sami dagur og
gjalddagi er á RIKB 08 1212. 

Í þessu útboði óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í
eftirfarandi flokki: 



Flokkur	         Lokagjalddagi	Útistandandi fjárhæð*	Lánstími
RIKB 10 1210	10.12.2010	0 m.kr.	2,0 ár

Lokagjalddagi
10.12.2010

Útistandandi fjárhæð
0 m.kr.

Lánstími
2,0 ár

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir mun Seðlabankinn f.h.
ríkissjóðs bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu, til aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 á
uppgjörsdegi útboðsins.  Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu
útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur
fyrir þessi viðskipti er einum degi eftir viðskiptadag (T+1). 

Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, lánamálum ríkisins á alþjóða-
og markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9633.