2007-12-10 16:31:31 CET

2007-12-10 16:31:31 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Icelandair breytir áherslum í flugi vestur um haf á næsta ári


Reykjavík 10. desember 2007

Toronto nýr áfangastaður
Flugi hætt til Baltimore
Aukið framboð til London 
Allt að 5 flug daglega til Kaupmannahafnar 
Morgunflug til Bandaríkjanna

Icelandair mun breyta áherslum í flugi sínu vestur um haf á næsta ári.
Reglulegt áætlunarflug hefst til Toronto í maí, en flugi verður hætt til
Baltimore í vetur. Morgunflugi til Boston og New York, sem tekið var upp á
síðasta sumri verður haldið áfram í sumar. Lítillega verður bætt við framboð
til London á árinu. Flug til Baltimore mun hætta frá og með 13. janúar 2008, en
flug til Toronto mun hefjast 2. maí 2008. 

“Við erum í heild að bjóða upp á svipaða áætlun og á yfirstandandi ári, en
gerum ákveðna breytingu í fluginu vestur um haf með því að færa okkur til
Toronto í Kanada frá Baltimore. Við höfum vaxið hratt á undanförnum árum og
munum á árinu 2008 gera minniháttar breytingar á áætluninni, leggjum áherslu á
að þjóna íslenska markaðinum og ferðamannamarkaðinum til Íslands, og fínstillum
leiðakerfi og framboð með áherslu á arðsemi”, segir Jón Karl Ólafsson,
forstjóri Icelandair. 

Toronto er langstærsta borgin í Kanada og helsta samgöngumiðastöð landsins.
”Borgin verður án efa eftirsótt af Íslendingum, því hún er lifandi
fjölmenningarborg sem gaman er að heimsækja. Hún gefur okkur einnig mikla
möguleika til að sækja ferðamenn til landsins því borgin er samgöngumiðstöð og
er miðpunktur í mjög þéttbýlu milljónasamfélagi. Við byrjuðum á síðasta ári
flug til Halifax og leggjum því áherslu á uppbyggingu í Kanada um þessar
mundir", segir Jón Karl. “Við kveðjum jafnframt Baltimore eftir að hafa flogið
milli borgarinnar og Íslands um langa hríð. Við höfum séð afkomu á leiðinni
versna, einkum eftir að nokkur þúsund manna samfélag Bandaríkjamanna í
herstöðinni á Keflavíkurflugvelli, hvarf af landi brott”. 

Lítillega verður aukið við áætlun til London á næsta ári og flogið þangað
tvisvar á dag alla daga vikunnar, auk þess sem áfram verður flogið til
Manchester og Glasgow í Bretlandi. Þá verður framboð til Kaupmannahafnar svipað
og var á síðasta ári og flogið allt að fimm sinnum á dag til borgarinnar á
næsta sumri, en fjórum sinnum á dag flesta daga. 

Næsta vor mun Icelandair á ný fljúga frá Íslandi til Bandaríkjanna kl.10 að
morgni, og býður upp á flug frá París og Frankfurt klukkan átta að morgni til
Íslands. „Eins og flestir þekkja þá byggir leiðakerfið okkar á ákveðinni 24
klukkustunda hringrás þar sem flugvélar okkar fara flestar til Evrópu að
morgni, koma til baka síðdegis og fara síðan vestur um haf og lenda snemma
morguns hér á landi. Sú nýbreytni að bjóða upp á hina leiðina, þ.e. að fara frá
Evrópu að morgni, áfram til Bandaríkjanna að morgni, koma frá Bandaríkjunum um
miðnætti og halda áfram að næturlagi til Evrópu gafst vel á síðasta sumri og
við munum halda þessu áfram“, segir Jón Karl. 

Frekari upplýsingar veitir

Guðjón Arngrímsson
gudjon@icelandairgroup.is
864 5849