|
|||
2011-11-23 18:34:02 CET 2011-11-23 18:35:05 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirMatsfyrirtækið S&P breytti í dag horfum á lánshæfismati ríkissjóðs í stöðugar úr neikvæðum.Matsfyrirtækið Standard & Poor‘s staðfesti í dag óbreytta lánshæfiseinkunn BBB-/A-3 fyrir langtíma- og skammtímaskuldbindingar Ríkissjóðs Íslands í erlendri og innlendri mynt. Horfum var breytt úr neikvæðum í stöðugar. Helstu atriði úr fréttatilkynningu Standard og Poor‘s eru í lauslegri þýðingu: -- Íslenskt efnahagslíf er á batavegi eftir fall þriggja stærstu viðskiptabankanna. Hagvöxtur hefur tekið við sér að nýju eftir tveggja ára djúpa niðursveiflu. -- Að okkar mati hefur náðst mikilsverður árangur í endurskipulagningu efnahagsreikninga einkageirans og við búumst við að því ferli verði að mestu lokið um mitt ár 2012. -- Við höfum því breytt horfum um lánshæfismat Íslands í stöðugar úr neikvæðum. Þar eru vegnar saman styrkari grunnstoðir efnahagslífsins á móti áhættu tengdri afléttingu gjaldeyrishafta á næstu árum. -- Við staðfestum einnig BBB-/A-3 lánshæfiseinkunnir Ríkissjóðs Íslands |
|||
|