2017-03-22 16:39:11 CET

2017-03-22 16:39:11 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Uppkaup ríkisbréfa RIKH 18 1009


Ákveðið hefur verið að halda ekki útboð á ríkisbréfum föstudaginn 24. mars
2017.  Þess í stað verða uppkaup kl. 10:30 til 11:00 með tilboðsfyrirkomulagi.
Ríkissjóður býðst til að kaupa til baka óverðtryggð bréf í flokknum RIKH 18
1009 sem er með lokagjalddaga 9. október 2018. Tilgangur uppkaupanna er að
minnka stærð flokksins sem nú er um 172 ma.kr. og draga þar með úr
endurfjármögnunaráhættu ríkissjóðs á lokagjalddaga flokksins. 

Heildarfjárhæð samþykktra tilboða getur orðið allt að 10.000 milljónir króna en
niðurstaðan verður tilkynnt að loknum uppkaupum. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð
sem berast, hluta þeirra eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum
ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í uppkaupunum en þeir annast einnig
tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að
nafnvirði. 

Uppkaupunum verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast á innsendum
verðum (e. multiple price auction method). Að öðru leyti er vísað í
uppkaupsskilmála sem fylgja þessari frétt. 



Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 29. mars 2017.



Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson forstöðumaður Lánamála ríkisins,
í síma 569 9633.