2011-03-04 12:46:09 CET

2011-03-04 12:47:09 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 16 1013 og RIKB 31 0124



Útboð á óverðtryggðum flokkum ríkisbréfa, RIKB 16 1013 og RIKB 31 0124 fór fram
hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll
samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta
ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 


Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 16 1013:
Alls bárust 5 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 500 m.kr. að nafnverði. Öllum
tilboðum var hafnað. 

RIKB 31 0124:
Alls bárust 13 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.130 m.kr. að nafnverði. 6
tilboðum var tekið fyrir 1.280 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 93,25 (7,14%
ávöxtunarkröfu). 


Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 8.
mars. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 9. mars 2011.