|
|||
2024-04-24 20:16:13 CEST 2024-04-24 20:16:18 CEST Festi hf. - Viðskipti stjórnendaFesti hf.: Úthlutun kaupréttaÁ fundi stjórnar Festi þann 23. apríl 2024 var tekin ákvörðun um að veita lykilstjórnendum samstæðunnar kauprétti að samtals 4.725.000 hlutum í félaginu, eða sem samsvarar um 1,57% af útgefnu hlutafé félagsins. Forstjóra og framkvæmdastjórum félagsins var veittur kaupréttur að samtals 1.890.000 hlutum eða 270.000 hlutum hver. Kaupréttarsamningar vegna hinna úthlutuðu hluta voru undirritaðir í dag, 24. apríl 2024. Eru skilmálar þeirra í samræmi við samþykkt aðalfundar Festi hinn 6. mars 2024 á kaupréttaráætlun fyrir forstjóra, æðstu stjórnendur og lykilstarfsmenn samstæðunnar og starfskjarastefnu félagsins sem eru í viðhengi. Heildarfjöldi hluta sem heimilt er að veita kauprétt vegna á grundvelli kaupréttaráætlunarinnar er 5.500.000. Er markmið með veitingu kauprétta að tengja langtímahvatakerfi stjórnenda samstæðunnar við afkomu og langtímamarkmið félagsins og þar með langtímahagsmuni hluthafa þess. Meginefni kaupréttarsamninganna er sem hér segir:
Í kjölfar úthlutunar kaupréttanna nemur heildarfjöldi útistandandi kauprétta 4.725.000 hlutum, um 1,57% af útgefnu hlutafé félagsins, sem Festi hefur veitt til 39 stjórnenda samstæðunnar. Áætlaður heildarkostnaður (gjaldfærsla) vegna kaupréttarsamninganna, byggt á Black Scholes útreikningum, er að fjárhæð um 122 milljónir króna. Á aðalfundi Festi þann 6. mars 2024 var stjórn jafnframt veitt heimild til að samþykkja kaupréttaráætlun byggða á 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og gera kaupréttarsamninga við allt fastráðið starfsfólk samstæðunnar um kaup á hlutum í félaginu, sbr. viðhengi. Öllu fastráðnu starfsfólki samstæðunnar hefur verið boðinn kaupréttur í félaginu í samræmi við þá samþykkt, á sama gengi og áður greinir. Tilkynnt verður um niðurstöðu þeirrar úthlutunar þegar endanleg þátttaka liggur fyrir, fyrir opnun markaða fimmtudaginn 2. maí nk. Upplýsingar um kauprétti sem veittir voru forstjóra og framkvæmdastjórum í tilviki beggja kaupréttaráætlana eru í viðhengi. Viðhengi
Tilkynning - Eva Guðrún Torfadóttir 2.pdf Tilkynning - Ásta S. Fjeldsted 1.pdf Tilkynning - Óttar Örn Sigurbergsson 2.pdf Tilkynning - Óttar Örn Sigurbergsson 1.pdf Starfskjarastefna Festi hf..pdf Kaupréttaráætlun fyrir starfsmenn Festi hf. og dótturfélaga.pdf Tilkynning - Ýmir Örn Finnbogason 1.pdf Tilkynning - Guðrún Aðalsteinsdóttir 2.pdf Tilkynning - Ýmir Örn Finnbogason 2.pdf Tilkynning - Magnús Kr. Ingason 1.pdf Tilkynning - Óðinn Árnason 1.pdf Tilkynning - Ásta S. Fjeldsted 2.pdf TIlkynning - Guðrún Aðalsteinsdóttir 1.pdf Tilkynning - Magnús Kr. Ingason 2.pdf Tilkynning - Óðinn Árnason 2.pdf Tilkynning - Eva Guðrún Torfadóttir 1.pdf Kaupréttaráætlun fyrir forstjóra, æðstu stjórnendur og lykilstarfsmenn Festi hf. og dótturfélaga.pdf |
|||
|