|
|||
![]() |
|||
2017-04-04 13:45:52 CEST 2017-04-04 13:45:52 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Eimskipafélag Íslands hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarEimskip ósammála lagatúlkun FjármálaeftirlitsinsEins og Fjármálaeftirlitið hefur tilkynnt hefur stjórn eftirlitsins komist að þeirri niðurstöðu að Eimskip hafi brotið gegn 1. mgr. 122. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, í tengslum við birtingu árshlutareiknings fyrir fyrsta ársfjórðung 2016, og lagt á félagið 50 milljón króna stjórnvaldssekt. Fjármálaeftirlitið telur brot Eimskips felast í því að hafa ekki birt fyrr innherjaupplýsingar sem mynduðust að mati eftirlitsins um bætta rekstrarafkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi 2016 eða sent Fjármálaeftirlitinu tilkynningu um frestun birtingar. Eimskip er ósammála þeirri lögskýringu sem liggur til grundvallar niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins, m.a. á grundvelli neðangreindra atriða:
Ef fallist verður á lögskýringu Fjármálaeftirlitsins mun hún leiða til þess í framkvæmd að skráðum félögum er í raun ómögulegt að standa eðlilega að vinnu við undirbúning fjárhagsuppgjöra, nema með því að taka ávallt upp það verklag að tilkynna eftirlitinu um frestun á birtingu upplýsinga um leið og undirbúningsvinna uppgjörs hefst. Vandséð er hins vegar hverju slík framkvæmd myndi þjóna og hvað þá fyrir fjárfesta sem eiga von á slíkri reglubundinni upplýsingagjöf af hálfu skráðra félaga á markaði. Að mati félagsins var öllum undirbúningi við gerð og birtingu uppgjörsins hagað í samræmi við lög og góða stjórnarhætti. Þess vegna hefur félagið ákveðið að vísa málinu til dómstóla.
Um Eimskip Eimskip er leiðandi flutningafyrirtæki á Norður-Atlantshafi með tengingar við alþjóðlega markaði og sérhæfingu í flutningsmiðlun um allan heim, með þá framtíðarsýn að vera framúrskarandi í flutningalausnum og þjónustu. Eimskip var stofnað árið 1914 og er með hlutabréf sín skráð á Nasdaq Iceland. Félagið rekur 61 starfsstöðvar í 20 löndum, er með 21 skip í rekstri og hefur á að skipa um 1.700 starfsmönnum. |
|||
|