2015-02-06 17:00:00 CET

2015-02-06 17:00:01 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Skiptigengi í gjaldeyrisútboði


Samkvæmt tilkynningu Seðlabanka Íslands dags. hinn 9. desember sl. varðandi
gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands sem haldið verður 10. febrúar nk.  kom fram
í útboðsskilmálum að skiptigengi vegna kaupa bankans á erlendum gjaldeyri í
tengslum við sölu ríkisverðbréfa í flokki RIKS 33 0321 yrði birt í lok dags 6.
febrúar. 

Ákveðið hefur verið að skiptigengi á fjölda eininga ríkisverðbréfa pr. evra
skal byggjast á útboðsverðinu og föstu verði ríkisverðbréfsins, sem er
112,785619  kr. pr. eining af ríkisverðbréfinu með áföllnum vöxtum og verðbótum
(e. dirty price) miðað við uppgjörsdag  13. febrúar 2015 (ávöxtunarkrafa
2,88%).1 

Formúlan er eftirfarandi: Skiptigengi = útboðsverð/(verð ríkisverðbréfs/100).



1 Hreint verð (e. clean price) er 101,67.