|
|||
![]() |
|||
2017-12-12 11:08:51 CET 2017-12-12 11:09:52 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarÚtboð Arion banka á 12, 6 og 5 mánaða víxlum – ARION 181220, ARION 180620 og ARION 180518Arion banki verður með víxlaútboð fimmtudaginn 14. desember 2017. Um er að ræða víxla til 12 mánaða, 6 mánaða og 5 mánaða með gjalddaga 20. desember 2018, 20. júní 2018 og 18. maí 2018. Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið verdbrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl. 16:00 þann 14. desember en greiðslu- og uppgjörsdagur er 20. desember 2017. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|