2011-07-08 17:40:00 CEST

2011-07-08 17:41:01 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisvíxla RIKV 11 1017 og RIKV 12 0116


Miðvikudaginn 13. júlí kl: 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 11 1017 og RIKV 12 0116 sem eru með gjalddaga 17.
október 2011 og 16. janúar 2012. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudagur 15. júlí 2011.

Sótt verður um að RIKV 12 0116 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ OMX á
Íslandi mánudaginn 18. júlí 2011.