|
|||
2017-11-28 10:21:24 CET 2017-11-28 10:22:25 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarÚtboð sértryggðra skuldabréfa þann 6. desember 2017 fellur niðurSíðasta útboð sértryggðra skuldabréfa Arion banka á árinu 2017, sem fyrirhugað var þann 6. desember næstkomandi, fellur niður. Samkvæmt uppfærðri útgáfuáætlun bankans sem birt var í lok ágústmánaðar var gert ráð fyrir að heildarútgáfa sértryggðra skuldabréfa á árinu 2017 næmi á bilinu 25-30 milljörðum króna. Markmiðum bankans um útgáfu sértryggðra skuldabréfa á árinu hefur þegar verið náð þar sem bankinn hefur gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 29,9 milljarða króna það sem af er þessu ári. Sjá útgáfuáætlun: https://www.arionbanki.is/bankinn/fjarfestatengsl/skuldabrefa-fjarfestar/#utgafuaaetlun
Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Magnús Jensson, fjármögnun Arion banka, eirikur.jensson@arionbanki.is, s: 444-7468.
|
|||
|