2013-10-30 17:44:57 CET

2013-10-30 17:45:58 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Icelandair Group hf. - Ársreikningur

Góður rekstur á þriðja ársfjórðungi


  -- Hagnaður eftir skatta nam 65,3 milljónum USD samanborið við 51,4 milljónir
     USD árið áður.
  -- EBITDA nam 102,2 milljónum USD og jókst um 24,3 milljónir USD frá sama
     tímabili 2012.
  -- EBITDAR nam 114,3 milljónum USD samanborið við 92,7 milljónir USD árið
     áður.
  -- Heildartekjur jukust um 17% milli ára.
  -- Eiginfjárhlutfall 40% í lok september 2013.
  -- Handbært fé frá rekstri 30,3 milljónir USD samanborið við 10,1 milljón USD
     árið áður.



Björgólfur Jóhannsson, forstjóri:

„Starfsemi Icelandair Group hefur vaxið með arðbærum hætti á undanförnum árum.
Fjöldi farþega í millilandaflugi er áætlaður 2,3 milljónir í ár en þeir voru
1,3 milljónir árið 2009. Áfangastöðum í millilandaflugi hefur fjölgað um 14 á
sama tíma og flugvélar í okkar rekstri eru nú 40 en voru 26 árið 2009.
Gistinóttum á hótelum okkar hefur fjölgað um 30% og starfsmenn okkar eru nú um
2.800 eða um 700 fleiri en árið 2009. Svo mikill vöxtur á stuttum tíma getur
reynt mjög á innviði fyrirtækis. Til þessa hefur okkur auðnast að vaxa án
verulegra áfalla. Það er ljóst að skýr áhersla félagsins á kjarnastarfsemina
ásamt reynslu og þekkingu okkar metnaðarfulla starfsfólks er að skila okkur
þessum góða árangri. 

Afkoman á þriðja fjórðungi ársins var góð og hagnaður eftir skatta nam 65,3
milljónum USD samanborið við 51,4 milljónir USD á síðasta ári. Flugáætlun okkar
í millilandaflugi á fjórðungnum var sú umfangsmesta frá upphafi. Við fluttum um
822 þúsund farþega. Farþegum á Norður-Atlantshafsmarkaðnum fjölgaði mest eða um
16% og voru þeir 52% af heildarfarþegafjölda félagsins. Töluverð aukning varð
einnig á ferðamannamarkaðinum til Íslands eða rúmlega 7%. 

Það hefur verið yfirlýst stefna okkar frá árinu 2009 að draga úr
árstíðarsveiflu og byggja Ísland upp sem heilsársáfangastað til að auka arðsemi
greinarinnar í heild.  Við höfum verið í fararbroddi að auka
ferðamannastrauminn utan háannatímans og við sjáum áfram mikil sóknarfæri í
vetrarferðamennsku. Við munum því áfram kappkosta að nýta þau tækifæri og þróa
frekari vaxtarbrodda í íslenskri ferðaþjónustu.“ 



Frekari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801