|
|||
![]() |
|||
2016-12-15 17:09:45 CET 2016-12-15 17:09:45 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag síðasta útboði ársins þar sem fjórir flokkar sértryggðra skuldabréfa voru boðnir til sölu. Heildartilboð í útboðinu voru 20 talsins og námu samtals 2.500 m. kr. að nafnverði. Þrjú tilboð að fjárhæð 540 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 19 á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,49%-5,55%. Öllum tilboðum í flokkinn var tekið á 5,55% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 14.500 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Sjö tilboð að fjárhæð 660 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 21 á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,52%-5,57%. Engum tilboðum í flokkinn var tekið. Þrjú tilboð að fjárhæð 340 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 22 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,19%-3,21%. Öllum tilboðum í flokkinn var tekið á 3,21% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 18.740 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Sjö tilboð að fjárhæð 960 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,01%-3,06%. Öllum tilboðum í flokkinn var tekið á 3,06% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 3.340 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 22. desember 2016. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. [] |
|||
|