2017-02-15 11:00:48 CET

2017-02-15 11:00:48 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Leiðrétting: Arion banki lýkur víxlaútboði - Frétt birt 2017-02-14 18:30:01


Leiðrétting - Samþykkt tilboð í hverjum flokki voru ekki rétt

Arion banki hf. lauk í dag, þriðjudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm
mánaða.  Í heild bárust 28 tilboð upp á 4.540 milljónir kr. og var tilboðum
tekið fyrir 2.680 milljónir kr. 

Í heild bárust 10 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.640 milljónir kr., á
flötum vöxtum á bilinu 5,19% - 5,40%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 700
milljónir á 5,24% flötum vöxtum. 

Í heild bárust 11 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.560 milljónir kr., á
flötum vöxtum á bilinu 5,19% - 5,40%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 1.100
milljónir á 5,30% flötum vöxtum. 

Í heild bárust 7 tilboð í 12 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.340 milljónir kr., á
flötum vöxtum á bilinu 5,44% - 5,55%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 880
milljónir á 5,49% flötum vöxtum. 

Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 20
febrúar. 

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs
Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.