|
|||
![]() |
|||
2007-12-21 11:52:10 CET 2007-12-21 11:52:10 CET REGULATED INFORMATION Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - Fyrirtækjafréttir- FITCH staðfestir lánshæfiseinkunn Straums-Burðaráss; horfur stöðugar.Fitch Ratings staðfesti í dag lánshæfiseinkun Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf.: langtímaeinkunn BBB-, skammtímaeinkunn F3, óháð einkunn C/D og stuðningseinkunn 3. Langtímahorfur eru stöðugar. Fitch segir að einkunnin endurspegli fjárhagslegan styrk Straums, öran vöxt tiltölulega stöðugra tekna, aukna landfræðilega dreifingu bæði eignasafns og tekna og þá staðreynd að áhættustýring og upplýsingagjöf hafi verið efld til muna að undanförnu. Einkunnin er einnig sögð markast af því að tiltölulega lítil reynsla sé komin á starfsemi Straums í núverandi mynd, hlutabréfaeign bankans sé enn mikil, einstakir liðir vegi þungt í efnahagsreikningnum og óvissa sé um hvernig gangi að samþætta einingar á ólíkum mörkuðum. Fitch tekur fram að samsetning rekstrareininga og áhættu hafi batnað en bætir við að það eigi eftir að koma fram í sterkari efnahagsreikningi og rekstrarafkomu. Haldi bankinn áfram að bæta sig að þessu leyti renni það stoðum undir að einkunn hans verði hækkuð; að sinni verði hins vegar fylgst með áhrifum hinna erfiðu aðstæðna á markaði á bankann. Loks er því lýst yfir að lausafjárstaða Straums sé góð og að fjárhagslegur styrkur bankans veiti honum umtalsverðan sveigjanleika til að vaxa, eins og stefnt sé að. Nánari upplýsingar veitir: Georg Andersen, forstöðumaður fjárfestatengsla. Phone: +354 585 6707 Mobile: +354 858 6707 georg@straumur.net |
|||
|