|
|||
![]() |
|||
2017-07-11 17:55:17 CEST 2017-07-11 17:55:17 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf. : Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem þrír flokkar voru boðnir til sölu. Heildartilboð í útboðinu voru 19 talsins og námu samtals 5.020 m. kr. að nafnverði. Tilboð að fjárhæð 20 m. kr. að nafnverði barst í flokkinn LBANK CB 21 á ávöxtunarkröfu 5,19% og var því tilboði ekki tekið. Átta tilboð að fjárhæð 1.580 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,92%-3,00%. Tilboðum að fjárhæð 400 m. kr. tekið á ávöxtunarkröfunni 2,92%. Heildarstærð flokksins verður 2.740 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Tíu tilboð að fjárhæð 3.420 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,69%-2,75%. Öllum tilboðum var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,75%. Heildarstærð flokksins verður 10.880 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 18. júlí 2017. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. [] |
|||
|