|
|||
2019-04-24 17:31:00 CEST 2019-04-24 17:31:03 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarÚtboð ríkisvíxla RIKV 19 1115Mánudaginn 29. apríl kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokknum RIKV 19 1115 sem er með gjalddaga 15. nóvember 2019. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er fimmtudagurinn 2. maí 2019. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635. Viðhengi |
|||
|