|
|||
2017-05-08 12:48:27 CEST 2017-05-08 12:48:27 CEST REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarJákvæðar horfur hjá ORReykjavík, 2017-05-08 12:47 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Matsfyrirtækið Reitun hefur breytt horfum í lánshæfismati á Orkuveitu Reykjavíkur úr stöðugum í jákvæðar. Matseinkunnin er áfram i.AA3. Í tilkynningu um matið segir meðal annars: „Planinu, aðgerðaráætlun vegna fjárhagsvanda OR 2011 – 2016 er lokið og árangurinn er umtalsvert betri en þau markmið sem sett voru. Stjórnendur hafa undanfarin ár náð miklum árangri í að byggja upp fjárhagslegan styrk Orkuveitunnar. Dregið hefur úr skuldsetningu og markaðsáhættu, fyrirtækið starfar í talsvert betra rekstrarumhverfi og fjárhagskennitölur hafa batnað til muna.“ Þá segir að til að bæta lánshæfi fyrirtækisins enn frekar þurfi OR að halda áfram á sömu braut; að lækka skuldir, draga úr markaðsáhættu og styrkja lausafjárstöðuna. Standa þurfi við þau arðgreiðsluskilyrði sem fyrirtækið hefur sett sér og tryggja áframhaldandi aðgengi að fjármálamörkuðum. Nánari upplýsingar: Ingvar Stefánsson framkvæmdastjóri fjármála OR 516 6100 |
|||
|